HealthTech in the Nordics

Опубликовано: 16 Июль 2026
на канале: Ský
398
2

Lýðfræðilegar áskoranir hafa í dag mikil áhrif á heilbrigðiskerfi heimsins. Jafnframt standa Norðurlöndin frammi fyrir vaxandi hlutfalli aldraðra samhliða aukningu í lífsstíls- og langvinnum sjúkdómum. Norðurlöndin eru því í sameiningu að takast á við þessar áskoranir og hafa nú hrint af stað umbreytingaferli á heilbrigðiskerfum sínum. Besta leiðin til aukinna lífsgæða er að koma í veg fyrir að fólk veikist og eru fyrirbyggjandi lausnir því sérlega mikilvægar. Í dag er um það bil 10% af vergri landsframleiðslu Norðurlandanna varið í meðferðarúrræði heilbrigðiskerfisins en einungis 0,3% er varið í fyrirbyggjandi heilbrigðisúrræði. Norðurlöndin taka nú höndum saman og vinna að því að auka áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir með það að leiðarljósi að jafna úthlutun fjármagns sem varið er í heilbrigðiskerfin og stefna að 5/5 hlutfalli milli meðferðar- og fyrirbyggjandi aðgerða.

Norræn samstaða er lykillinn að því að viðhalda stöðu Norðurlandanna sem leiðtogar á heimsvísu í heilbrigðismálum og tryggja samkeppnishæfa framtíð heilbrigðisgreina. Framtíðarsýnin er að Norðurlöndin verði árið 2030 orðin leiðandi á heimsvísu með sjálfbært og tæknivætt heilbrigðiskerfi sem bjóði upp á sérsniðna heilbrigðisþjónustu fyrir alla Norðurlandabúa.

(Ský in cooperation with Nordic Innovation hosts an online conference in Iceland Innovation Week about the future of HealthTech in the Nordics as a part of the Nordic Innovation Project „Health, Demography and Quality of Life“. On a global level, demographic challenges have a major impact on health care systems. Nordic countries have a growing proportion of elderly people and an increased prevalence of lifestyle and chronic diseases. The Nordic region is facing those challenges head-on and is going through a transformation process. The best way for increased quality of life is to prevent you from becoming sick. Currently, approximately 10% of the GDP is spent on treatment and 0,3% on prevention. The Nordics want to see more focus on preventive health and the ratio becoming 5/5. We believe Nordic cooperation is key to maintain our position as global frontrunners and secure a competitive future for the health-related industries. Our vision is that by 2030, the Nordics will be the most sustainable and integrated health region in the world, providing the best possible personalized health care for all its citizens.)