Partý á Selfossi á Spotify: https://spoti.fi/3VfFBZd
Love Guru 20 ára.
Í tilefni af þessum merka áfanga í lífi Gura ákváðum við að skella í lauflétt "mashup" frá þessum 20 árum.
Mashup er tvö eða fleiri lög sett saman í eitt, okkar inniheldur 7 lög og heitir Partý á Selfossi (þar sem 1 2 Selfoss og Partý útum allt eru mest áberandi).
Ég ákvað að gera svona "ferlis myndband" til að kynna lagið og halda í gleðina, ekki því þetta er svanasöngur nei Guruinn er í banastuði, til að þakka samstarfsfólki Gura fyrir samstarf og hjálpina.
Ef ég ætti að nefna og tagga alla þá sem unnið hafa með Gura þá þyrfti ég að tagga hálfa þjóðina.
En ég vil nefna nokkur sem ég vil þakka sérstaklega.
Stelpurnar sem taka þátt þessu mashupi, fyrst Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur sem tekur að sér hlutverk strympu í þessu Partýi á Selfossi.
Bergmálssystur, Selma og Elísa sem hafa brallað helling með Gura, Lísa Einars sem hefur bæði sungið inn á lög og komið fram með Gura rétt eins og Karitas Harpa.
Nidal Sebbar (N3dek) hefur verið hægri hönd Gura í nokkur ár, mikill hæfileika piltur sem ég hef aldrei hitt enda býr hann í Marokkó en hann hefur gert mest allt með Gura síðan 2020.
Sérstakar þakkir fær auðvitað Jón Þór Weekendson fyrir endalausa hjálp við allt og auðvitað mix gæðastjórnun (það vantar meiri botn!).
Inger fyrir að taka upp síðustu myndbönd og Inga "Funky Dancer" fyrir allt í fortíð og nútíð.
Eva María var auðvitað móðir hópsins og söngkona í upphafi (Love Guru Allstars) takk fyrir allt.
Árni Már alltgaur, takk fyrir allt gaur, Siffi Love Trainie , Guðrún Ásta fyrir allan stuðninginn (Fan Nr.1 :) ) og auðvitað pabbi sem hefur komið fram í ca. 10 Guru myndböndum og fyrstur til að aðstoða með hvað sem þarf.
Ég vil líka þakka áhorfendum fyrir magnaðan stuðning, jákvæðni og gleði eftir að ég fór að koma fram aftur, ég hefði aldrei getað búist við álíka viðtökum.
Síðast en ekki síst vil ég þakka Ingólfi Guðna Árnasyni fyrir hans vináttu, fagmennsku og ótrúlega snilld og í leiðinni vil ég senda dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og vina og munið, lífið er stutt.
Sýnið ást, kærleika og þakklæti í dag, ekki á morgun. Ingó hefur verið mér mjög ofarlega í huga í aðdraganda þessa afmælis árs og við ætluðum meira að segja að gera lag saman í sumar til að halda upp á árin 20.
Ingó var maðurinn á bak við það góða í tónlist Gura, hann gerði alla tónlist og er maðurinn á bak við eitt af hressari stuðlögum landins 1 2 Selfoss.
Hans fráfall fær mig til þess að skirfa þetta litla þakkarbréf, ég biðst afsökunar á að tagga ykkur en ég vil bara að þið vitið hvaða hug ég ber til ykkar og þetta þakkarbréf kemur beint frá hjartanum.
Það er helst feimni við að vilja ekki trufla fólk að ég tagga ekki fleiri en ég veit hver þið eruð og ég sendi ykkur ást og gleði og endalaust þakklæti.
Love Guru á að vera gleði, Love Guru á að vera gaman, ekkert meira, ekkert minna.
Lífið er núna, njótum þess.
Höldum Partý á Selfossi eða Kópaskeri eða Súðavík eða Neskaupstað....
Doddi
#loveguru #mashup #ísland