JÓLAKLUKKUR KALLA #2: Sástu jólasveininn? - Sigga Eyrún.
Árið 2017 stingur Sigga upp á því við mig að gera jólatexta við Straighten Up and Fly Right eftir Nat King Cole. Ég hlýði kallinu og tek samdægurs upp lagið í sálarinnblásinni útsetningu, svona eins og Daptones hefðu kannski gert. Þarna var ég nýbúinn að láta ævilangan draum rætast og kaupa mér mitt trommusett. Það lá því beinast við að tromma þetta sjálfur auk þess að leika inn hljómborð og gítara.
En stjarna lagsins fyrir utan Siggu sem gerir þetta af sínum óaðfinnanlega sjarma er Birgir Bragason sem gefur laginu grúv og sveiflu með mögnuðum bassaleik. Takið til dæmis eftir bassabreikinu á 2:26.
Er hvessa tók í fyrrinótt ég sett’á mig skó
Arkaði í garðinn til að moka snjó
Út undan mér sýndist einhver hreyfa sig
Ég trúði ekki eigin augum, klípptu mig!
Sástu jólasveininn fara oní steininn?
Sástu jólasveininn strompast með stóra fína pokann sinn?
Hann fór í gegnum snjóinn til að gefa í skóinn
Sástu jólasveininn laumupokast oní strompinn minn?
Þú ert kannski tregur við að trúa mér
Þú heldur kannski að ég sé að ljúga að þér
Ég djóka kann með Jesú eða Múhameð
en jólasveinn er ekkert til að grínast með
Hann fór í gegnum snjóinn til að gefa í skóinn
Sástu jólasveininn laumupokast oní strompinn minn?
Sigurdór Guðmundsson endurhljómjafnaði fyrir útgáfu.