Karl Orgeltríó og Salka Sól

Опубликовано: 16 Август 2026
на канале: Karl Olgeirsson
603
6

Bréfbátar er nýtt lag sem Karl Orgeltríó og Salka Sól flytja.

Árið 2017 söng Salka lagið I’ve Seen It All með Ragga Bjarna á plötunni Happy Hour með Ragga Bjarna sem Karl Orgeltríó sendi frá sér. Það sló eftirminnilega í gegn og erum við í tríóinu mjög spenntir að fá Sölku til liðs við okkur aftur!

Karl Orgeltríó hefur verið starfrækt frá 2013 af þeim Karli Olgeirssyni, Ásgeiri Ásgeirssyni og Ólafi Hólm. Megin einkenni tríósins er Hammondorgel sem litar hljóðheiminn á skemmtilegan hátt og skapar bandinu sérstöðu í tónlistarflórunni.

Orgeltríóið hefur gefið út lög með Ragga Bjarna, Sölku Sól, Röggu Gröndal og Katrínu Halldóru. Auk þess hefur það komið fram með söngvurum eins og Friðrik Dór, Dísu Jakobs, RAKEL, Sigga Guðmunds, Siggu Eyrúnu, Heiðu Ólafs og fleirum.


Bréfbátar (4:16)
(Karl Olgeirsson)

Flytjendur
Salka Sól söngur
Karl Olgeirsson orgel, rhodes og raddir
Ásgeir Ásgeirsson gítar
Ólafur Hólm trommur og slagverk