Pálmi Gunnarsson - Litla húsið

Опубликовано: 14 Июль 2026
на канале: Karl Olgeirsson
349
9

JÓLAKLUKKUR KALLA #4: Litla húsið - Pálmi Gunnarsson

Í nóvember 2016 laust hugmynd niður í höfuð mitt. Lítið sætt lag í ætt við hinn ameríska þjóðlagastíl þeirra Randy Newman og Tom Waits. Og textinn ætti að vera afturlit til fortíðar, fyrsta íbúðin, fyrsta barnið, bleikur ljómi yfir öllu. Lagið kom fullskapað en ég vissi að textinn yrði of væminn ef ég færi að reyna að hnoða eitthvað. Svo ég sendi línu á Friðrik Erlingsson og lýsti fyrir honum hugmyndinni, hvað væri að gerast í hvaða kafla og þess háttar. Það liðu ekki margir klukkutímar áður en ljóðið kom í tölvupósti. Algjörlega beint í hjartastað!

Þar er litla húsið mitt og hallar undir flatt;
fölnað, máð; feyskið, smáð.
Ryðgað bárujárnið og brotnar rúðurnar.
En eitt sinn þó hér gleðin bjó
er litla húsið veröld okkar var.

Þú að setja’ upp hilluna og ég að mála vegg;
bangsa hjá barnið lá.
Kerti lýsa glugga svo ljóma rósirnar;
um vetrarkvöld undir stjörnufjöld
þá heimili og veröld okkar var.

Brak í gólfi, berir litlir fætur finna sæng og sofna rótt.
Hlátur, grátur, hamingja og draumar undir súð á vetrarnótt.
Plata’ á gömlum fóni’ og lögin fylla húsið; jólin færast nær.
Ilmur, gleði, einfaldleikinn sjálfur - eins og gerst það hafi’ í gær.

Skelin stendur eftir ein svo innantóm og köld;
ekkert ljós, engin rós.
Hlátur aldrei hljómar né fótatak á fjöl;
nú stend ég þar handan götunnar
og horfi’ á veröld þá sem eitt sinn var.

Um vetrarkvöld,undir stjörnufjöld,
ég kveð þá veröld sem þar eitt sinn var.

Þá hafði ég samband við gamlan félaga, Pálma Gunnars. Honum fannst lagið fínt og söng það inn í Snjóhúsinu, svo heitir hljóðverið mitt, og lék á kontrabassa. Ég spilaði með á falskt píanó. Til að fá enn meira tréverk í hljóðheiminn kallaði ég til tvo bestu strengjaleikara landsins, þær Unu Sveinbjarnardóttur og Bryndísi Höllu og fékk þær til að leika strengjakvartett.

Sigurdór Guðmundsson endurhljómjafnaði fyrir útgáfu.

Karl Örvarsson hannaði kápuna.