Lag: Karl Olgeirsson, ljóð: Friðrik Erlingsson
Pálmi Gunnarsson: Söngur og kontrabassi
Karl Olgeirsson: Píanó, útsetning, upptaka og hljóðblöndun
Una Sveinbjarnardóttir: Fiðlur
Bryndís Halla Gylfadóttir: Selló
Litla húsið.
Þar er litla húsið mitt
og hallar undir flatt;
fölnað, máð; feyskið, smáð.
Ryðgað bárujárnið
og brotnar rúðurnar.
En eitt sinn þó
hér gleðin bjó
er litla húsið veröld okkar var.
Þú að setja’ upp hilluna
og ég að mála vegg;
bangsa hjá barnið lá.
Kerti lýsa glugga
svo ljóma rósirnar;
um vetrarkvöld
undir stjörnufjöld
þá heimili og veröld okkar var.
Brak í gólfi, berir litlir fætur finna sæng og sofna rótt.
Hlátur, grátur, hamingja og draumar undir súð á vetrarnótt.
Plata’ á gömlum fóni’ og lögin fylla húsið; jólin færast nær.
Ilmur, gleði, einfaldleikinn sjálfur - eins og gerst það hafi’ í gær.
Skelin stendur eftir ein
svo innantóm og köld;
ekkert ljós, engin rós.
Hlátur aldrei hljómar
né fótatak á fjöl;
nú stend ég þar
handan götunnar
og horfi’ á veröld þá sem eitt sinn var.
Um vetrarkvöld,
undir stjörnufjöld,
ég kveð þá veröld sem þar eitt sinn var.