Deildarmeistarar KA og Afturelding mættust í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta þann 21. apríl árið 2001. Úr varð einhver mest spennandi leikur í sögu KA-Heimilisins sem varð tvíframlengdur og fór á endanum í bráðabana.
Jöfnunarmark Guðjóns Vals Sigurðssonar undir lok fyrri framlengingar er eitt frægasta mark sem skorað hefur verið í íslenskum handbolta.
Mörk KA í leiknum:
Guðjón Valur Sigurðsson 13 mörk, Halldór Jóhann Sigfússon 7, Heimir Örn Árnason 3, Giedrius Cerniauskas 3, Sævar Árnason 1, Arnór Atlason 1 og Andrius Stelmokas 1 mark. Í markinu vörðu þeir Hörður Flóki Ólafsson 22 skot og Hans Hreinsson 1 skot.
Mörk Aftureldingar í leiknum:
Bjarki Sigurðsson 8 mörk, Savukynas Gintaras 7, Páll Þórólfsson 4, Galkauskas Gintas 3, Þorkell Guðbrandsson 3 og Magnús Már Þórðarson 3 mörk. Í markinu varði Reynir Þór Reynisson 26 skot.