Jónatan Magnússon - Tönnin í nefinu

Опубликовано: 18 Август 2026
на канале: Ágúst Stefánsson
1,093
5

Jónatan Magnússon lenti í hörðum árekstri við Þorvarð Tjörva Ólafsson er KA og Haukar mættust í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta árið 2001. Tjörvi skall með andlitið framan á andlit Jonna og féllu þeir báðir við. Það fossblæddi úr Jonna og voru meiðsli hans mjög alvarleg.

Jonni var ekki myndaður á sjúkrahúsinu og var skurðinum einfaldlega lokað. Um tíu mánuðum seinna var Jonni enn með bólguna í nefinu og lék af fullum krafti með handboltaliði KA. En í leik gegn Aftureldingu fékk hann högg sem varð til þess að hann fann mikið til í nefinu.

Brynjólfur Jónsson læknir tók hressilega á nefinu og í kjölfarið kom upp sýking svo nefið varð enn ófrýnilegra daginn eftir. Jonni fór því til læknis enn á ný og þá fyrst var tekin röntgenmynd. Þá kom loksins í ljós að tönnin hans Tjörva var föst í nefinu og var að valda öllum þessum vanda.

Jonni losnaði því loksins við tönnina eftir 10 mánaða veru í nefinu! Tönnin var loks send til Tjörva í pósti sem var himinlifandi með gjöfina.