ÍA - KA 2-4 (15. júlí 2014)

Опубликовано: 14 Июль 2026
на канале: Ágúst Stefánsson
165
0

KA sótti ÍA heim upp á Skipaskaga þann 15. júlí 2014 í 1. deild karla í fótbolta. Leikurinn var heldur betur líflegur og bauð upp á sex mörk.

Það var Hallgrímur Mar Steingrímsson sem kom KA yfir með stórglæsilegu marki á 9. mínútu en Garðar Bergmann Guðlaugsson jafnaði metin skömmu síðari fyrir ÍA með marki úr vítaspyrnu. Atli Sveinn Þórarinsson kom KA hinsvegar aftur yfir með skalla á 18. mínútu og KA leiddi 1-2 í hálfleik.

Arsenij Buinickij kom KA í 1-3 eftir laglegt spil á 49. mínútu en Jón Vilhelm Ákason færði Skagamönnum líflínu með glæsilegu marki úr aukaspyrnu á 80. mínútur. Hallgrímur Mar slökkti þó endanlega vonir Skagamanna er hann gerði sitt annað mark og fjórða mark KA í uppbótartíma og 2-4 útisigur KA staðreynd.