Fylkir - KA 1-0 (29. júní 1989)

Опубликовано: 16 Март 2026
на канале: Ágúst Stefánsson
67
0

KA liðið náði sér ekki á strik er það sótti Fylki heim þann 29. júní 1989. Þar þurfti liðið að sætta sig við 1-0 tap á Fylkisvelli og var KA þar með komið 7 stigum á eftir Valsmönnum á toppi deildarinnar.

Mark Fylkismanna gerði Hilmar Sighvatsson á 57. mínútu en áður hafði Hilmar skotið framhjá úr vítaspyrnu sem Baldur Bjarnason krækti í á 15. mínútu leiksins.