Hallgrímur Mar Steingrímsson er markahæsti leikmaður í sögu knattspyrnudeildar KA en hann sló metið er hann skoraði tvívegis í 2-1 sigri KA á Keflavík þann 3. ágúst 2021 á Greifavellinum.
Þegar þetta myndband er birt hefur Hallgrímur gert samtals 74 mörk í deild og bikar fyrir KA en 65 þeirra hafa komið í deildarkeppni og 9 í bikarleikjum. Auk þess er hann leikjahæsti leikmaður KA sem og markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild.
Þrívegis hefur Hallgrímur skorað þrennu fyrir KA en hann gerði fyrst þrennu í heimaleik gegn ÍBV í efstu deild sumarið 2017. Sumarið 2019 gerði hann svo þrennu í bikarleik gegn Sindra en hann gerði þrennuna á aðeins tíu mínútna kafla. Þá skoraði hann einnig þrennu gegn Gróttu á Seltjarnarnesi á síðustu leiktíð er liðin mættust í efstu deild.
Hallgrímur gekk til liðs við KA aðeins 18 ára gamall en hann er uppalinn í Völsung á Húsavík og er gríðarlegur keppnismaður sem gefur sig ávallt allan fyrir félagið. Undanfarin ár hefur Hallgrímur verið einn besti leikmaður efstu deildar og hlotið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína.
Grímsi er ákaflega vel að þeim heiðri kominn að bera öll þessi félagsmet hjá KA og óskum við honum innilega til hamingju með áfangana og hlökkum til að sjá hann halda áfram að bæta metin.