KR - KA 0-0 (12. ágúst 1989)

Опубликовано: 14 Июль 2026
на канале: Ágúst Stefánsson
59
0

KR og KA léku við erfiðar aðstæður í Vesturbænum í roki og á þungum velli þann 12. ágúst sumarið 1989. Liðin fengu talsvert af marktækifærum, KA það besta þegar dæmd var vítaspyrna eftir að Þorfinnur Hjaltason, markvörður KR, felldi Bjarna Jónsson tveimur mínútum fyrir leikhlé. Þorvaldur Örlygsson tók spyrnuna og skoraði, en þurfti að taka hana aftur og þá varði Þorfinnur frá honum.