KA endaði í 6. sæti 1. deildar karla í knattspyrnu sumarið 2013 en skoraði nokkur glæsileg mörk en það glæsilegasta gerði Hallgrímur Mar Steingrímsson úr aukaspyrnu gegn BÍ/Bolungarvík og var hann markahæsti leikmaður liðsins með 6 mörk.
Lið KA sumarið 2013:
Andrés Vilhjálmsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Bessi Víðisson, Bjarki Baldvinsson, Brian Gilmour, Carsten Faarbech Pedersen, Darren Lough, Davíð Rúnar Bjarnason, Fannar Freyr Gíslason, Fannar Hafsteinsson, Gunnar Örvar Stefánsson, Gunnar Valur Gunnarsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Ivan Dragicevic, Jakob Hafsteinsson, Jón Heiðar Magnússon, Kristján Freyr Óðinsson, Mads Rosenberg, Ómar Friðriksson, Orri Gústafsson, Sandor Matus og Ævar Ingi Jóhannesson.
Þjálfari liðsins var Bjarni Jóhannsson og honum til aðstoðar voru þeir Srdjan Tufegdzic, Petar Ivancic og Helgi Steinar Andrésson.